vitamin

Spurt og svarað

Forsíða : Spurt og svarað

Hvaða vítamín er best fyrir aukin hárvöxt, meiri þykkt hárs og hárlos ? Er það B5 ?

Jú það er rétt hjá þér að B⁵ vítamín viðheldur heilbrigði húðar, nagla og hárs. En við mælum með vítamíni frá Vitabiotics sem heitar Perfectil®Platinum það er vítamín blanda, sérsniðin til að viðhalda heilbrigði húðar, hárs og nagla, ásamt því að hafa efni sem eru nauðsynleg fyrir hársekkina og frumuvöxt. Vítamínin frá Vitabiotics fást í apótekum Lyf og heilsu og fleiri einkrareknum apótekum. Hér getur þú lesið þér nánar til um Perfectil Platinum 
 

Er í lagi að taka d-vítamín og omega 3 saman ??

Yfirleitt inniheldur omega 3 ekki D vítamín nema því sé bætt í. Því má taka þetta saman.

Má taka lýsi og D vítamín?


Samkvæmt Lýðheilsustöð er ráðlagður dagskammtur D- vítamíns 10-15 míkrógrömm á dag. Með því að taka lýsi daglega fáum við lágmarksþörfinni fullnægt. Stærri skammta skal taka í samráði við lækni, lyfjafræðing eða annað heilbrigðisstarfsfólk.

Af hverju er sykur í Biomega D ?

Sykur er notað sem fylliefni í Biomega D.

Þarf að taka eitthvað annað með D vítamíni til að það nýtist?


Ekki er þörf á að taka neitt með D-vítamíni til að nýta það.

Hver er ráðlagður dagskammtur fyrir börn?

Ráðlagður dagskammtur af D vítamíni fyrir börn frá 6 mánaða aldri er 10 míkrógrömm,

Ég tek fjölvítamín, má ég taka D vítamín aukalega?


Samkvæmt Lýðheilsustöð er ráðlagður dagskammtur D- vítamíns 10-15 míkrógrömm á dag. Stærri skammta skal taka í samráði við lækni, lyfjafræðing eða annað heilbrigðisstarfsfólk.

Leitarvél