vitamin

Króm

Forsíða : Af hverju vítamín? : Króm

Króm


Króm er steinefni sem er nauðsynlegt fyrir líkamann, tekur þátt í að stjórna blóðsykrinum í blóðinu og dregur úr og kemur í veg fyrir að sykur safnist fyrir í blóðinu. Það lækkar blóðfitu og minnkar sykurþörf.

Uppspretta: Kjöt, lifur, heilhveiti, kartöflur, paprika og rúgmjöl.

Skortur: Einkenni eru fyrst og fremst hækkaður blóðsykur. Krómskortur er algengari með hækkandi aldri. 

Eitrun: Er mjög sjaldgæf. Hjá iðnaðarmönnum sem vinna með króm getur króm orsakað ofnæmisviðbrögð og jafnvel lungnakrabbamein.


Aukaverkanir: Mjög sjaldgæfar ef farið er eftir ráðlögðum dagskömmtum, of mikið magn af krómi gæti þó orsakað húðútbrot.

Frábendingar: Þeir sem eru með sykursýki ættu ekki að taka inn króm, nema í samráði við lækni.

Ekki eru til ráðlagðir dagskammtar fyrir Króm.

Leitarvél