vitamin

Kopar

Forsíða : Af hverju vítamín? : Kopar

Kopar


Kopar er málmur og er nauðsynlegur líkamanum. Hann er mikið notaður í málmblöndur, leiðslur og rör vegna mikillar leiðsluhæfni. Blanda af kopar og sínki nefnist messing og blanda af kopar og tini nefnist brons. Kopar var áður fyrr notað gegn bakteríu- og sveppasýkingum í húð og augum.

Uppspretta: Kopar finnst í lifur, skelfiski, möndlum, baunum, avókadó, sveppum, appelsínum, hvítlauk, laxi, grænu grænmeti og byggi. Hver einstaklingur er með 100-150 mg í líkamanum.

Skortur: Er mjög sjaldgæfur enda eru margar fæðutegundir sem innihalda kopar. Helsu einkenni eru blóðleysi, HDL kólesteról (góða) getur lækkað og beinmassi getur líka minnkað.

Eitrun: Einkenni eitrunar eru frá meltingavegi eins og uppköst og niðurgangur. Önnur einkenni eitrunar geta verið frá nýrum, gula frá lifur eða blóðþrýstingslækkun.

Aukaverkanir: Mjög fáar eða litlar, en kopar getur samt valdið oxun í líkamanum. C-vítamín getur dregið úr frásogi á kopar í líkamanum, einnig geta of stórir skammtar af sínki valdið kopar skorti í líkamanum. 

Ráðlagðir dagskammtar:
Ungabörn 6-11 mán. 0,3 mg
Börn 12-23 mán 0,3 mg
Börn 2-5 ára 0,4 mg
Börn 6-9 ára 0,5 mg
Unglingar 10-13 ára 0,7 mg
Konur og karlar > 13 ára 0,9 mg
Konur á meðgöngu 1,0 mg
Konur með barn á brjósti 1,3 mg


 

Heimildir:

  • Insel P, Turner RE, Ross D. (2007) Nutrition. London. ISBN-10: 0-7637-4252-X.
  • Vítamín og steinefni fræðslubanki. Tekið af vef lýðheilsustöðvar. Slóðin er: http://www2.lydheilsustod.is/vitamin

 

Leitarvél