vitamin

Kalk

Forsíða : Af hverju vítamín? : Kalk

Kalk (Calcium)

1,5 – 2 % af líkamsþyngd okkar er kalk. Það er ekkert annað steinefni sem er í svo miklu magni í líkamanum. 99% af kalki líkamans er í beinum og tönnum og er því fullnægjandi kalk inntaka mikilvæg fyrir bein og tannheilsu. Þetta 1% sem er ekki í tönnum og beinum er í blóði og vefjum líkamans. Það gegnir hlutverki í vöðvasamdráttum, sendingu taugaboðefna, storknun blóðs og í efnaskiptum frumna. Líkaminn reynir að halda kalkmagni í blóði stöðugu og sé skortur á kalki í fæðunni, sækir líkaminn það í beinin. D-vítamín eykur frásog á kalki í þörmum. Líkaminn frásogar 25-75% af því kalki sem við innbyrðum, háð aldri, D-vítamín neyslu, kalkþörf og magni kalks í matnum. Frásog er tilltölulega mikið á uppvaxtarárum og á meðgöngu en minnkar svo með aldrinum. Kalk í fæðunni er helst að finna í mjólkurvörum, sardínum og grænu grænmeti.

Uppspretta: Mjólk, mjólkurvörur og grænt grænmeti.

Kalkskortur: Hjá börnum leiðir kalkskortur til óeðlilegs beinvaxtar og til beinþynningar hjá fullorðnum. Skortur á D-vítamíni getur leitt til skorts á kalki af því að D-vítamín eykur nýtingu kalks í líkamanum, einnig getur yfirmagn D-vítamíns valdið kalkeitrun.

Aukaverkanir: Engar þekktar ef farið er eftir ráðlögðum dagskömmtum. Umfram kalk skilst út í þvagi, en sé mikils kalks neytt,t.d. með neyslu mikils af kalkbættum matvælum eða sem fæðurbótarefnis geta myndast nýrnasteinar.

Ráðlagðir dagskammtar:
Ungabörn 6-11 mán 540 mg
Börn 1-5 ára 700 mg
Börn 6-9 ára 800 mg
Karlar 10-17 ára 1000 mg
Karlar >17 ára 1000 mg
Konur 10-17 ára 1000 mg
Konur >17 ára 800 mg
Konur á meðgöngu 1000 mg
Konur með barn á brjósti 1000 mg


Heimildir:

  • Insel P, Turner RE, Ross D. (2007) Nutrition. London. ISBN-10: 0-7637-4252-X.
  • Vítamín og steinefni fræðslubanki. Tekið af vef lýðheilsustöðvar. Slóðin er: http://www2.lydheilsustod.is/vitamin

 

Leitarvél