vitamin

Joð

Forsíða : Af hverju vítamín? : Joð

Joð 

Joð er eina efnið sem var notað hér áður fyrr við skjaldkirtilstruflunum, áður en lyf við því kom á markað. Joð hefur mikilvægu hlutverki að gegna við myndun skjalkirtilshormónsins týroxíns sem m.a. stjórnar orkunýtingu líkamans. Joð hefur verið notað í hóstamixtúrur sem slímlosandi og það er einnig bakteríudrepandi og sótthreinsandi og er notað þannig útvortis.

Uppspretta: Í líkamanum eru 20-30 mg af joði og þriðjung þess er að finna í skjaldkirtlinum. Joð er í ýmsu sjávarfangi eins og fiski og þara, einnig er joð í morgunkorni, mjólkurvörum eggjum, baunum, brauði og kjöti. Langflestir fá dagsþörf af joði úr mat.

Joðskortur: Joðskortur veldur röskun á starfsemi skjaldkirtils. Langvarandi ofneysla getur valdið joðeitrun og skaðað skjaldkirtilstarfsemina sem getur m.a. leitt til þess að fólk fitni.

Aukaverkanir: Við of stóra skammta af joði geta komið fram útbrot, höfuðverkur og járnbragð í munni.

Frábendingar: Sjúklingar í lyfjameðferð við skjaldkirtilstruflunum ættu ekki að taka joð aukalega.

Ráðlagðir dagskammtar: 
Ungabörn 6-11 mán 50 mcg
Börn 12-23 mán 70 mcg
Börn 2-5 ára 90 mcg
Börn 6-9 ára 120 mcg
Karlar >10 ára 150 mcg
Konur > 10 ára 150 mcg
Konur á meðgöngu 175 mcg
Konur með barn á brjósti 200 mcg 



 

Leitarvél