vitamin

Járn

Forsíða : Af hverju vítamín? : Járn

Járn (Iron, Ferrous sulphate)

Járnskortur er algengasti skortur á einu næringarefni í heiminum, járn getur þó verið hættulegur í of stórum skömmtum. Mun algengara er að konur, börn og unglingar þjáist af járnskorti fremur en aðrir hópar. Járnþörf kvenna á barneignaraldri er meiri en annarra. Járn gefur blóði rauðan lit og gegnir mörgum mismunandi hlutverkum innan líkamans. Það sér um súrefnisflutning frá lungum til vefja líkamans, á þátt í efnahvörfum ensíma, er nauðsynlegt fyrir eðlilega starfssemi ónæmiskerfisins og gegnir hlutverki við myndun taugaboðefna og við þroskun á heila. Talið er að járnskortur hjá börnum geti valdið hegðunartruflunum og skertum greindarþroska. Pólífenólar, sem finnast meðal annars í tei og kaffi, hindra upptöku á járni á meðan C-vítamín, sem er neytt samhliða járni eykur upptöku. Því er gott að fá sér glas af nýpressuðum appelsínusafa eða ávexti með járnríkum mat.

Uppspretta: Innmatur eins og lifur og hjörtu, rautt kjöt, haframjöl og eggjarauður.

Járnskortur: Blóðleysi/blóðskortur lýsir sér í slappleika og þreytu. Þeir sem eiga á hættu að lenda í því eru ungabörn, börn yngri en 2ja ára, unglingsstúlkur, þungaðar konur, konur fyrir tíðarhvörf og aldraðir. Konur sem eru í þol íþróttum eiga á hættu að fá járnskort.

Aukaverkanir: Geta verið hægðartregða, niðurgangur, brjóstsviði, ógleði og magaverkir. Mjög mikilvægt er að geyma öll fæðubótarefni þar sem börn ná ekki til, en þetta á sérstaklega við um járn, þar sem stórir skammtar geta verið banvænir börnum.

Milliverkanir: : C-vítamín eykur frásog járns frá þörmum. Gott er að taka C-vítamín með járni. Sýrubindandi lyf geta dregið úr frásogi járns, það þurfa að líða 1-2 klst. milli inntöku járns og sýrubindandi lyfja. Járn getur bundist við tetrasýklinsambönd (sýklalyf) og þannig hamið frásog þeirra. 1-2 klst. þurfa að líða milli inntöku þeirra og járns.

 

Ráðlagðir dagskammtar:
Ungabörn 6-11 mán 8 mg
Börn 1-5 ára 8 mg
Börn 6-9 ára 9 mg
Karlar 10-17 ára 11 mg
Karlar >18 ára 9 mg
Konur 10-13 ára 13 mg
Konur >13 ára fram að tíðahvörfum 15 mg
Konur eftir tíðahvörf 9 mg
Konur á meðgöngu Í samráði við lækni
Konur með barn á brjósti 15 mg

 

Heimildir:

  • Insel P, Turner RE, Ross D. (2007) Nutrition. London. ISBN-10: 0-7637-4252-X.
  • Vítamín og steinefni fræðslubanki. Tekið af vef lýðheilsustöðvar. Slóðin er: http://www2.lydheilsustod.is/vitamin

Leitarvél