Pýridoxín tekur þátt í myndun og umbroti þessara efna í líkamanum, eins og kolvetnum, fitu, amínósýru, kjarnsýru, próteina og hemóglóbíns.
Við pýridoxín skorti og í blöndu með öðrum B-vítamínum við almennum B-vítamín skorti. Við fjöltaugabólgu. Talið draga úr einkennum fyrirtíðarspennu. Krampastillandi.
Uppspretta: Kjöt, fiskur, kjúklingar, egg, heilhveiti og gulrætur. Pýridoxín getur tapast við matreiðslu.
B6-vítamín skortur: Einkenni pýridoxín skorts geta lýst sér í sprungnum munnvikum, húð flagnar kringum nef og augu, geðdeyfð, uppköstum, húðbólgum, blóðskorti, taugabólgum og nýrnasteinum. Þungaðar konur eiga á hættu að þjást af pýridoxín skorti, vítamínið er nauðsynlegt fóstrinu og berst til þess frá móður. Misnotkun áfengis getur leitt til skorts á pýridoxíni.
B6-vítamín eitrun: Taugaskemmdir geta komið fram eftir töku 200mg/dag eða meira að staðaldri, og 2000mg/dag í skamman tíma. Taugaskemmdir geta lýst sér í dofa í fótum og höndum. Einkennin ganga yfirleitt til baka ef dregið er úr inntöku pýridoxíns en varanlegar taugaskemmdir eftir stóra skammta eru þó vel þekktar.
Aukaverkanir: Óþekktar
Milliverkanir: Ýmis lyf geta valdið skorti á pýridoxín, t.d. ísóníazíð (berklalyf), hýdralazín, getnaðarvarnartöflur, penisillamín, neómýcín og rífampicín. Pýridoxín minnkar virkni L-dópa í Parkinson´s meðferð.
Frábendingar: Parkinson´s sjúklingar sem nota L- dópa í lyfjameðferð ættu ekki að taka inn pýridoxín.
Ráðlagðir dagskammtar:
Ungabörn 0-6 mán 300 mcg
Ungabörn 6-12 mán 500 mcg
Börn 1-3 ára 800 mcg
Börn 4-6 ára 900 mcg
Börn 7-10 ára 1,1 mg
Karlar 11-14 ára 1,3 mg
Karlar 15-60 ára 1,5 mg
Karlar 61-75 ára 1,4 mg
Karlar >75ára 1,2 mg
Konur 11-14 ára 1,1 mg
Konur 15-60 ára 1,2 mg
Konur >60 ára 1,1 mg
Konur á meðgöngu 1,4 mg
Konur með barn á brjósti 1,5 mg