vitamin

B12 vítamín

Forsíða : Af hverju vítamín? : B vítamín : B12 vítamín

B₁₂-vítamín (Kóbalamín, Cyanókóbalamín)


Kóbalamín er mikilvægt fyrir frumuvöxt og frumuskiptingu og eflir taugakerfið. Vitað er að kóbalamín tekur þátt í einu efnahvarfi í myndun erfðaefnisins (DNA). Til að blóðmyndun sé eðlileg er mikilvægt að nægjanlegt magn kóbalamíns, fólínsýru og járns sé fyrir hendi. Notað við kóbalamínskorti.

Uppspretta: Kjöt, kjúklingur, fiskur, mjólk og egg. Grænmetisætur ættu að hafa í huga að oft er ekki nægjanlegt magn kóbalamíns í fæðu þeirra. Rúmlega helmingur kóbalamíns í fæðunni getur farið forgörðum við suðu. Kóbalamín er eina vítamínið sem inniheldur málm (kóbalt) en hann er nauðsynlegur líkamanum.

B12-vítamín skortur: Einkenni frá blóði og blóðmyndun. Fækkun rauðra og hvítra blóðkorna leiðir til þreytu og aukinnar sýkingarhættu. Minnkað framboð á blóðflögum dregur úr storkugetu blóðsins, marblettir verða því tíðari svo og blæðingar úr sárum. Truflanir á blóðmyndun geta þó bæði stafað af kóbalamínskorti og fólínsýruskorti og því er þýðingarmikið að greina hvort sé. Stafi blóðleysi af völdum kóbalamíns en er meðhöndlað sem um fólínsýruskort væri að ræða gætu orðið varanlegar taugaskemmdir vegna áframhaldandi skorts á kóbalamíninu. Um er að ræða andlegar og líkamlegar afleiðingar af kóbalmínsskorti, svo sem skert hreyfigeta handa og fóta ásamt trufluðu titrings- og stöðuskyni, minnistap, sjóntruflanir og rugli. Frumuskipting er hröð í þekjuvef og því gætir skorts þar fljótt sem kemur fram í særindum á tungu, magaslímhúð rýrnar sem leiðir til niðurgangs.

Aukaverkanir: Litlar sem engar þótt skammtar séu stórir.

Milliverkanir: Nokkur lyf geta valdið skorti á kóbalamíni: Neómýcín, getnaðarvarnartöflur, asetýlsalisýlsýra og afleiður hennar (asprín og skyld lyf). Krampastillandi lyf s.s. fenóbarbítal, fenýtóín og prímidon. Metýldópa. Kólesteróllækkandi lyf, s.s. kólestýramín og klófíbrat. Einnig geta risaskammtar af C-vítamíni valdið skorti á kóbalamíni.

Ráðlagðir dagkammtar:
Ungabörn 6-11 mán 0,5 mcg
Börn 12-23 mán 0,6 mcg
Börn 2-5 ára 0,8 mcg
Börn 6-9 ára 1,3 mcg
Karlar >10 ára 2,0 mcg
Konur >10 ára 2,0 mcg
Konur á meðgöngu 2,0 mcg
Konur með barn á brjósti 2,6 mcg

Leitarvél