Tíamín er vatnsleysanlegt og tekur þátt í nokkrum efnahvörfum sem fram fara í taugavef og hjarta, við myndun rauðra blóðkorna og efnahvörfum sem tengjast viðhaldi vöðva. Frumur taugakerfisins nærast á kolvetnum og þær eru háðar tíamíni til þess að geta notað kolvetnið sem orkugjafa. Fælir burt flugur og önnur skordýr vegna þess hve lyktarsterkt það er.
Uppspretta: Tíamín er að finna í flestum próteinríkum fæðutegundum, kjöti, heilhveiti, rúgmjöli og öðrum kornmat. Tíamín skemmist við suðu.
Gagnast í meðferð þegar um er að ræða sérstaka tegund blóðleysis. Vitað er um ákveðnar truflanir í taugakerfi sem geta orsakast af tíamínskorti. Rannsóknir hafa sýnt að í sumum tilfellum hefur hjartaáfall stafað af svæðisbundnum tíamínskorti í hjartanu.
B1-vítamín skortur: Taugafrumurnar verða mest fyrir barðinu á tíamínskorti. Einkenni eru þreyta, lystarleysi og einbeitingarskortur. Önnur einkenni eru truflanir í taugakerfi, meltingarkerfi og hjarta- og æðakerfi. Áhrif tíamínskorts á meltingarkerfið lýsir sér í lystarleysi og hægðartregðu. Áhrif tíamínskorts á hjarta og æðakerfi getur verið lækkaður blóðþrýstingur, hraður hjartsláttur og hjartsláttartruflanir. Óhófleg áfengisneysla getur orsakað tíamínskort.
Aukaverkanir: Eru fáar því það er vatnsleysanlegt og skilst því greiðlega út úr líkamanum. Ofnæmi gegn tíamíni er þekkt.
Milliverkanir: Sýrubindandi lyf. Ýmis sýklalyf. Getnaðarvarnartöflur geta framkallað tíamínskort. Alkóhól hindrar frásog thíamíns. Önnur efni, eins og östrogen og koffein vinna gegn tíamíni og geta í framhaldi af því valdið skorti.
Frábendingar: Engar þekktar.
Ráðlagðir dagskammtar:
Ungabörn 6-11 mán 0,4 mg
Börn 12-23 mán 0,5 mg
Börn 2-5 ára 0,6 mg
Börn 6-9 ára 0,9 mg
Karlar 10-13 ára 1,2 mg
Karlar 14-17 ára 1,5 mg
Karlar 18-30 ára 1,5 mg
Karlar 31-60 ára 1,4 mg
Karlar 61-74 ára 1,3 mg
Karlar >75ára 1,2 mg
Konur 10-13 ára 1,0 mg
Konur 14-17 ára 1,2 mg
Konur 18-60 ára 1,1 mg
Konur >60 ára 1,0 mg
Konur á meðgöngu 1,5 mg
Konur með barn á brjósti 1,6 mg