B-vítamín er flokkur vítamína sem samanstendur af 8 mismunandi B-vítamínum. Þau eru B6 (Pýridoxín) og B12 (Kóbalamín), þíamín, ríbóflavín, níasín, bíótín, fólat og pantótenatsýra. B-vítamín eru vatnsleysanleg og eru viðkvæm fyrir mikilli hitun. Hlutverk og mikilvægi þessara B-vítamína í líkamanum eru misjöfn og er best að skoða hvert fyrir sig til þess að fá nánari upplýsingar. Meðal annars er fólat mikilvægt fyrir konur á barneignaraldri þar sem að það getur dregið úr hættu á alvarlegum skaða á miðtaugakerfi fósturs. Fólinsýra er tilbúið form vítamínsis og hægt að taka það sem bætiefni þar sem að oft er erfitt að fullnægja þörf þungaðra kvenna með mataræði einu saman. Grænmetisætur sem hvorki borða kjöt né mjólkurafurðir geta átt það á hættu að þjást af skorti á B12 vítamíni. Mikilvægt er fólk sem ekki neytir þessara fæðutegunda taki B12 vítamín eða borði kornmeti með viðbættu B12 vítamíni. Vegna þess hvað lifrin er fær um að geyma mikið B12 getur það tekið 3-5 ár fyrir skortseinkenni að koma fram.
Hér getur þú skoðað virkni hvers B vítamíns fyrir sig
Heimildir: